Beint í efni

Ný regla vegna tilnefningar um ræktunarbú ársins

19.04.2023

Búgreinadeild hrossabænda Bændasamtaka Íslands vill koma á framfæri að á Búgreinaþingi hrossabænda 2023 var samþykkt að forsenda tilnefningar til ræktunarbús ársins miðist við fulla félagsaðild í Bændasamtökunum fyrir 1. maí ár hvert.

Ekki er gerður greinarmunur á hvort ræktandi sé persóna eða skráð kennitala fyrirtækis. Aðrar forsendur fyrir tilnefningu eru óbreyttar.