Beint í efni

Ný Nautastöð vígð á morgun!

09.02.2009

Ný Nautastöð Bændasamtaka Íslands verður vígð á morgun, þriðjudaginn 10. febrúar að Hesti í Borgarfirði. Húsið verður opið bændum og öllu áhugafólki um íslenska nautgriparækt á milli kl. 13 og 17. Klukkan 14:00 fer vígslan fram auk þess sem boðið verður upp á tónlistaratriði, fyrirlestra og að sjálfsögðu veitingar.

Gamla Nautastöðin á Hvanneyri var byggð árið 1960 og Nautauppeldisstöð í Þorleifskoti í Flóa byggð árið 1977. Nýja stöðin á Hesti mun taka við hlutverki þeirra beggja en nautin verða flutt frá gömlu Nautastöðinni á Hvanneyri eftir nokkrar vikur og kálfar frá Þorleifskoti á sama tíma.

Leiðin að Hesti er fram hjá afleggjaranum á Hvanneyri og um 6 km norður eftir Borgarfjarðarbrautinni.

Bændasamtökin vonast til þess að sjá sem flesta og samfagna íslenskum bændum sem taka nú í notkun hús sem mun án vafa gjörbæta stöðu nautgriparæktarinnar í landinu.