Ný Nautaskrá komin út
07.08.2015
Ný Nautaskrá Nautastöðvar Bændasamtaka Íslands kom út á dögunum og hefur þegar verið dreift til bænda. Skráin inniheldur upplýsingar um fimm ný naut, auk tíu nauta sem áður hafa hlotið kynningu í nautaskránni. Einnig er að finna upplýsingar um holdanaut af Angus, Limousin og Galloway kynjunum. Auk hefðbundis efnis eru að þessu sinni að finna í skránni grein um kyngreiningu sæðis, eftir Þorstein Ólafsson, dýralækni Nautastöðvarinnar og Guðmund Jóhannesson, ábyrgðarmann nautgriparæktar hjá RML, auk greinar um frjósemi mjólkurkúa eftir Þorstein Ólafsson. Magnús B. Jónsson ritar greinina Samþætting erfðaframfara og hömlun gegn aukningu skyldleikaræktar./BHB