Beint í efni

Nóvembermarkaður með greiðslumark í mjólk

26.09.2022

Næsti markaður fyrir greiðslumark mjólkur verður haldinn þann 1. nóvember nk. 
Tilboðum þarf þó að skila inn fyrr þar sem tilboðsfrestur rennur út á miðnætti 10. október nk. 

Líkt og áður er að hámarki hægt að óska eftir 50.000 lítrum til kaups á hverjum markaði, eða alls 150.000 lítrum árlega. 

Hámarksverð greiðslumarks er þrefalt afurðastöðvaverð. 

Opnað hefur verið fyrir tilboð en tilboðum um kaup og sölu greiðslumarks skal skila rafrænt á www.afurd.is en allar nánari upplýsingar má einnig finna þar.