
Norrmejerier vantar mjólkurfitu
26.04.2017
Sænska afurðafélagið Norrmejerier er í stökustu vandræðum þessar vikurnar en svo vel hefur gengið að selja fituríkar vörur félagsins að nú er ekki lengur hægt að bjóða upp á hefðbundið smjör þar sem það vantar einfaldlega mjólkurfitu. Síðustu tvö ár hefur sala Norrmejerier aukist um 20% og hafa fituríkar vörur átt sérstaklega góðu gengi að fagna. Í stað þess að kaupa inn mjólkurfitu frá öðrum afurðastöðvum, sem einnig er dýr um þessar mundir, hefur stjórn félagsins ákveðið að draga einfaldlega úr framboðinu á smjöri sínu og leggja meiri áherslu á þær mjólkurvörur sem skila félaginu betri afkomu/SS.