
Norðlenska hækkar verð fyrir nautgripi
27.04.2017
Norðlenska hefur gefið út nýja verðskrá fyrir nautgripi sem gildir frá og með 21. apríl sl. Verðskráin hækkar sem nemur 10 kr/kg fyrir UN 1 A og aðrir flokkar hækka um sama hlutfall.
Samkvæmt upplýsingum frá Norðlenska hefur sala nautakjötsafurða gengið ágætlega undanfarið og hefur nú um nokkurt skeið verið frekar vöntun á gripum til slátrunar en hitt. „Er það von okkar að með þessari verðskrárbreytingu tæmist okkur enn meira af nautgripum til slátrunar en verið hefur og geri okkur þannig kleift að halda áfram því markaðsstarfi sem Norðlenska hefur verið að vinna, með íslenskt kjöt á innanlandsmarkaði“ segir Ágúst Torfi Hauksson, framkvæmdastjóri Norðlenska.
Hægt er að nálgast nýja verðskrá Norðlenska með því að smella hér.