Nóg smjör í Noregi næstu árin!
16.08.2013
Líkt og margir lesendur naut.is muna eftir varð mikill smjörskortur í Noregi um jólin árið 2011. Nú hefur stærsta afurðafélagið í landinu, TINE, leyst málið með því að koma með nýtt vörumerki á markaðinn sem forsvarsmenn félagsins telja að muni leysa þetta vandamál til frambúðar.
Hið nýja vörumerki, sem kemur á markaðinn í haust og mun kallast Sunfield, verður markaðssett sem hefðbundið norskt smjör en lausnin á vandamálinu felst hins vegar í „smáaletrinu“. Þar kemur nefninlega fram að Sunfield sé smjör sem að stærstum hluta sé unnið úr norskri mjólk en geti þó verið byggt á hluta af innfluttri evrópskri mjólkurfitu/SS.