Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Niðurstöður um aukaúthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á pottaplöntum

23.02.2023

Fimmtudaginn 9. febrúar síðastliðinn rann út umsóknarfrestur aukaúthlutunar tollkvóta á pottaplöntum vegna fyrri hluta ársins 2023, sbr. reglugerð nr. 1151/2022. Tollkvótinn var fyrst auglýstur 24. október 2022. Engin tilboð bárust og er aukaúthlutun til komin vegna þessa. Ekki kom til útboðs í þetta sinn þar sem umsókn barst frá einu fyrirtæki í sama magn og í boði var.

Ein umsókn barst um innflutning á blómstrandi plöntum með knúppum eða blómum þó ekki kaktusa úr tollskrárnúmerum (0602.9081-9083 og 0602.9088). Umsókn var samþykkt um tollkvóta fyrir innflutning á 2.200 stk.

Ein umsókn barst um innflutning á pottaplöntum til og með 1 metri á hæð, þó ekki kaktusar og þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna í tollskrárnúmeri (0602.9093). Umsókn samþykkt um tollkvóta fyrir innflutning á 3.000 stk.

Matvælaráðuneytið hefur úthlutað tollkvótum til eftirtalins fyrirtækis á grundvelli umsóknar:

Blómstrandi plöntur með knúppum janúar – júní 2023

Magn (stk)Tilboðsgjafi
2.200Húsasmiðjan ehf

Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð janúar – júní 2023

Magn (stk)Tilboðsgjafi
3.000Húsasmiðjan ehf