Beint í efni

Niðurstöður tilboðsmarkaðar (september) fyrir greiðslumark mjólkur

02.09.2023

Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur

Markaður með greiðslumark í mjólk var haldinn þann 1. september og birti Matvælaráðuneytið niðurstöður markaðarins þann dag.

Matvælaráðuneytinu bárust 28 gild tilboð um kaup og sölutilboð voru 24. Tilboð voru send með rafrænum hætti í gegnum Afurð  sem er greiðslukerfi landbúnaðarins.

Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð, sem við lok tilboðsfrests var 379 kr. fyrir hvern lítra.  

Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverð er 350 kr./ltr.

Fjöldi gildra tilboða um sölu á greiðslumarki mjólkur voru 24.

Fjöldi gildra tilboða um kaup voru 28.

Fjöldi kauptilboða undir jafnvægisverði/hámarksverði var 19.  

Fjöldi sölutilboða yfir jafnvægisverði var 21

Greiðslumark sem boðið var fram (sölutilboð) voru alls 1.402.367 lítrar

Greiðslumark sem óskað var eftir (kauptilboð) voru 846.000 lítrar

Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða (jafnvægismagn) voru 225.000 lítrar að andvirði 78.750.000,- kr.

Seljendur með tilboð á jafnvægisverði eða lægra eru 3 talsins og selja 16% af framboðnu magni.

Kaupendur með tilboð á jafnvægisverði eða hærra eru 9 talsins og fá 92% af eftirspurðu magni í sinn hlut.

Eitt tilboð barst sem uppfyllti skilyrði um forgangsúthlutun til nýliða.

Sala greiðslumarks fer nú fram samkvæmt gildum tilboðum.

Matvælaráðuneytið mun nú senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram. Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast í Afurð.