Beint í efni

Niðurstöður tilboðsmarkaðar (nóvember) fyrir greiðslumark mjólkur

01.11.2023

Markaður með greiðslumark í mjólk var haldinn þann 1. nóvember og hefur Matvælaráðuneytið birt niðurstöður markaðarins.

Matvælaráðuneytinu bárust 47 gild tilboð um kaup og sölutilboð voru 26. Tilboð voru send með rafrænum hætti í gegnum Afurð  sem er greiðslukerfi landbúnaðarins.

Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð, sem við lok tilboðsfrests var 389 kr. fyrir hvern lítra.  

Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverð er 300 kr./ltr.

Fjöldi gildra tilboða um sölu á greiðslumarki mjólkur voru 26.

Fjöldi gildra tilboða um kaup voru 47.

Fjöldi kauptilboða undir jafnvægisverði/hámarksverði var 16.  

Fjöldi sölutilboða yfir jafnvægisverði var 17.

Greiðslumark sem boðið var fram (sölutilboð) voru alls 3.287.023 lítrar

Greiðslumark sem óskað var eftir (kauptilboð) voru 1.600.500 lítrar

Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða (jafnvægismagn) voru 1.048.500 lítrar að andvirði 314.550.000,- kr.

Seljendur með tilboð á jafnvægisverði eða lægra eru 9 talsins og selja 70,4% af framboðnu magni.

Kaupendur með tilboð á jafnvægisverði eða hærra eru 31 talsins og fá 100% af eftirspurðu magni í sinn hlut.

Tvo tilboð barst sem uppfyllti skilyrði um forgangsúthlutun til nýliða.

Sala greiðslumarks fer nú fram samkvæmt gildum tilboðum.

Matvælaráðuneytið mun nú senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram. Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast í Afurð.