Beint í efni

Niðurstöður tilboðsmarkaðar með greiðslumark mjólkur

01.12.2010

Við opnun tilboða um kaup og sölu á greiðslumarki mjólkur skv. reglugerð nr. 430/2010 þann 1. desember 2010 hefur komið fram  jafnvægisverð á markaði krónur 280 kr. fyrir hvern lítra mjólkur.


Alls bárust Matvælastofnun 56 tilboð um kaup eða sölu greiðslumarks.
 
Fjöldi gildra tilboða um sölu 14.
 
Fjöldi gildra tilboða um kaup 39.
 
Greiðslumark sem boðið var fram = 927.871 lítrar.
 
Greiðslumark sem óskað var eftir = 876.277 lítrar.
 
Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða = 138.555 lítrar.

 

Á meðfylgjandi mynd má sjá niðurstöðu tilboðsmarkaðar þann 1. desember 2010. Á myndinni er sýnd blá lína framboðs og rauð lína eftirspurnar.

 

Skurðpunktur línanna sýnir jafnvægisverð sem fram kom á markaðinum krónur 280 kr/l.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Til upplýsinga fyrir tilboðsgjafa

 

Þeir sem sett hafa inn tilboð um kaup á greiðslumarki og boðið verð sem er hærra eða jafnhátt því jafvægisverði sem fram kom á tilboðsmarkaðinum munu fá keypt greiðslumark í hlutfalli við magn viðkomandi  tilboðsgjafa af heildargreiðslumarki sem kemur til viðskipta.

Þeir sem sett hafa inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði sem er hærra en það jafnvægisverð sem fram kom geta ekki selt greiðslumark sitt. 

 

Samkvæmt framangreindri reglugerð er gert ráð fyrir að næsti tilboðsmarkaður verði haldinn 1. júní n.k.

 

BÍ birtu síðast tölur um meðalverð á síðustu 500.000 ltr sem viðskipti höfðu átt sér stað með, þann 1. júlí sl. Þá var meðalverðið 251,69 kr/ltr. Þess ber þó að geta að þær tölur miðast við 16 mánaða verðlagsárið sem nú er senn á enda, með 155 milljón lítra greiðslumark. Það ígildir 335,59 kr/ltr m.v. hefðbundið 12 mánaða verðlagsár, þannig að verð á greiðslumarki hefur því lækkað skv. því um 55 kr/ltr. Það eru 16%.

 

Greiðslumarkið sem viðskipti áttu sér stað með á markaðnum í dag gildir fyrir árið 2011, sem verður hefðbundið 12 mánaða verðlagsár, frá 1.1.2011 til 31.12.2011. Það verður 116 milljónir lítra.