Beint í efni

Niðurstöður tilboðsmarkaðar með greiðslumark mjólkur

01.11.2012

Við opnun tilboða um kaup og sölu á greiðslumarki mjólkur skv. reglugerð nr. 190/2011 þann 1. nóvember 2012 hefur komið fram jafnvægisverð á markaði 305 kr. fyrir hvern lítra mjólkur.

Alls bárust Matvælastofnun 61 tilboð um kaup eða sölu á greiðslumarki.

  • Fjöldi gildra tilboða um sölu = 14
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup = 47
  • Greiðslumark sem boðið var fram = 1.105.739 lítrar.
  • Greiðslumark sem óskað var eftir = 1.480.279 lítrar.
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða = 1.095.739 lítrar.
  • Kauphlutfall viðskipta er 79,96 %

Á meðfylgjandi mynd má sjá niðurstöðu tilboðsmarkaðar þann 1. nóvember 2012. Á myndinni er sýnd blá lína framboðs og rauð lína eftirspurnar. Jafnvægisverð sem fram kom á markaðinum reyndist vera 305 kr/l. 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þeir sem lögðu inn kauptilboð og buðu verð = 305 kr/líter eða hærra fá nú keypt hlutdeild í því greiðslumarki sem til sölu kemur.

 

Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði sem væri 305,- kr/líter eða lægra selja nú greiðslumark sitt.

 

Samanburður við fyrri markað sem haldinn var 1. apríl 2012 sýnir eftirfarandi:

  • að framboð er nú 226,2 % miðað við það sem boðið var til sölu á síðasta markaði.
  • að eftirspurn eftir greiðslumarki er nú 97,2 % miðað við það sem óskað var eftir á síðasta markað.
  • að verð á greiðslumarki hefur hækkað í krónum talið um 5 kr/líter.