Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Niðurstöður tilboðsmarkaðar með greiðslumark mjólkur

01.04.2014

Við opnun tilboða um kaup og sölu á greiðslumarki mjólkur þann 1. apríl 2014  skv. reglugerð nr. 190/2011 með síðari breytingum, hefur komið fram  jafnvægisverð á markaði  krónur 260 kr. fyrir hvern lítra mjólkur. 

Alls bárust Matvælastofnun 32 tilboð um kaup eða sölu á greiðslumarki. 

  • Fjöldi gildra tilboða um sölu = 28
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup = 2
  • Greiðslumark sem boðið var fram = 1.891.961 lítrar.
  • Greiðslumark sem óskað var eftir = 71.784 lítrar.
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða = 35.000 lítrar.
  • Kauphlutfall viðskipta er 48,76 % 

Á meðfylgjandi mynd má sjá niðurstöðu tilboðsmarkaðar þann 1. apríl 2014. Á myndinni er sýnd blá lína framboðs og rauð lína eftirspurnar. Jafnvægisverð sem fram kom á markaðinum reyndist krónur 260 kr/l. 

 

 

Þeir sem lögðu inn kauptilboð og buðu verð = 260 kr/líter eða hærra fá nú keypt hlutdeild í því greiðslumarki sem til sölu kemur. 

Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði sem væri  260,-  kr/líter eða lægra selja nú greiðslumark sitt. 

Samanburður við fyrri markað sem haldinn var þann 1. nóvember 2013 sýnir eftirfarandi:

  • að framboð er nú 182,9 % miðað við það sem boðið var til sölu á síðasta markaði.
  • að eftirspurn eftir greiðslumarki er nú 6,7 % miðað við það sem óskað var eftir á síðasta markaði.
  • að verð á greiðslumarki nú er 60 krónum lægra en það var á markaði þann 1. nóvember 2013

Áréttað er að næsti tilboðsmarkaður fyrir greiðslumark með gildistöku á yfirstandandi verðlagsári verður haldinn 1. september n.k.