Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Niðurstöður tilboðsmarkaðar með greiðslumark í mjólk

02.11.2015

Við opnun tilboða um kaup og sölu á greiðslumarki mjólkur þann 1. nóvember 2015  skv. reglugerð nr. 190/2011 með síðari breytingum, hefur komið fram  jafnvægisverð á markaði 175 kr. fyrir hvern lítra mjólkur.

 

Alls bárust Matvælastofnun 21 tilboð um kaup eða sölu á greiðslumarki.  

  • Fjöldi gildra tilboða um sölu = 19 
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup = 1  
  • Greiðslumark sem boðið var fram = 1.306.169 lítrar.
  • Greiðslumark sem óskað var eftir = 193.000 lítrar.
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða = 170.109 lítrar.
  • Kauphlutfall viðskipta er 88.14 % 

     

    Á meðfylgjandi mynd má sjá niðurstöðu tilboðsmarkaðar þann 1. nóvember 2015. Á myndinni er sýnd blá lína framboðs og rauð lína eftirspurnar. Jafnvægisverð sem fram kom á markaðinum reyndist krónur 175 kr./l.

     

     

    Samanburður við fyrri markað sem haldinn var þann 1. september 2015 sýnir eftirfarandi:

    • að framboð er nú 355,5 % miðað við það sem boðið var til sölu á síðasta markaði.
    • að eftirspurn eftir greiðslumarki er nú 20,3 % miðað við það sem óskað var eftir á síðasta markaði.
    • að verð á greiðslumarki nú er 25 krónum lægra en það var á markaði þann 1. september 2015