Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Niðurstöður tilboðsmarkaðar með greiðslumark í mjólk

02.04.2013

Við opnun tilboða um kaup og sölu á greiðslumarki mjólkur skv. reglugerð nr. 190/2011 þann 1. apríl 2013 hefur komið fram jafnvægisverð á markaði 320 krónur fyrir hvern lítra mjólkur.

Alls bárust Matvælastofnun 68 tilboð um kaup eða sölu á greiðslumarki.

  • Fjöldi gildra tilboða um sölu = 10
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup = 57
  • Greiðslumark sem boðið var fram = 711.781 lítrar.
  • Greiðslumark sem óskað var eftir = 2.624.697 lítrar.
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða = 711.781 lítrar.
  • Kauphlutfall viðskipta er 57,49 %

Á meðfylgjandi mynd má sjá niðurstöðu tilboðsmarkaðar þann 1. apríl 2013. Á myndinni er sýnd blá lína framboðs og rauð lína eftirspurnar. Jafnvægisverð sem fram kom á markaðinum reyndist krónur 320 kr/l. 
 

 

Þeir sem lögðu inn kauptilboð og buðu verð = 320 kr/líter eða hærra fá nú keypt hlutdeild í því greiðslumarki sem til sölu kemur.

Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði sem væri 320,- kr/líter eða lægra selja nú greiðslumark sitt.

Samanburður við fyrri markað sem haldinn var þann 1. Nóvember 2012 sýnir eftirfarandi:

  • að framboð er nú 64,4 % miðað við það sem boðið var til sölu á síðasta markaði.
  • að eftirspurn eftir greiðslumarki er nú 177,3 % miðað við það sem óskað var eftir á síðasta markaði.
  • að verð á greiðslumarki hefur hækkað í krónum talið um 15 kr/líter.