Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Niðurstöður tilboðsmarkaðar með greiðslumark í mjólk

01.04.2011

Við opnun tilboða um kaup og sölu á greiðslumarki mjólkur skv. reglugerð nr. 190/2011 þann 1. apríl 2011 hefur komið fram  jafnvægisverð á markaði  krónur 285 kr. fyrir hvern lítra mjólkur.


Alls bárust Matvælastofnun 72 tilboð um kaup eða sölu á greiðslumarki.
 
Fjöldi gildra tilboða um sölu = 10.
 
Fjöldi gildra tilboða um kaup = 62
 
Greiðslumark sem boðið var fram = 408.060 lítrar.
 
Greiðslumark sem óskað var eftir = 1.601.620 lítrar.
 
Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða = 229.072 lítrar.
 

Á meðfylgjandi mynd má sjá niðurstöðu tilboðsmarkaðar þann 1. apríl 2011. Á myndinni er sýnd blá lína framboðs og rauð lína eftirspurnar. Jafnvægisverð sem fram kom á markaðinum reyndist 285 kr/l.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þeir sem lögðu inn kauptilboð og buðu verð = 285 kr/líter eða hærra fá nú keypt hlutdeild í því greiðslumarki sem til sölu kemur.

Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði sem væri  285,-  kr/líter eða lægra selja nú greiðslumark sitt.

Samanburður við fyrri markað sem haldinn var þann 1. desember 2010 sýnir eftirfarandi:

•að framboð er nú 49% af því sem boðið var til sölu á síðasta markaði.
•að eftirspurn eftir greiðslumarki er nú 83 % meiri en var á síðasta markað.
•að verð á greiðslumarki hefur hækkað í krónum talið um 5. kr/líter.