Beint í efni

Niðurstöður tilboðsmarkaðar með greiðslumark í mjólk 1. nóv. 2011

01.11.2011

Við opnun tilboða um kaup og sölu á greiðslumarki mjólkur skv. reglugerð nr. 190/2011 þann 1. nóvember 2011 hefur komið fram jafnvægisverð á markaði krónur 290 kr. fyrir hvern lítra mjólkur.

Á meðfylgjandi mynd má sjá niðurstöðu tilboðsmarkaðar þann 1. nóvember 2011. Á myndinni er sýnd blá lína framboðs og rauð lína eftirspurnar. Jafnvægisverð sem fram kom á markaðinum reyndist krónur 290 kr/l. 
 

 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Þeir sem lögðu inn kauptilboð og buðu verð = 290 kr/líter eða hærra fá nú keypt hlutdeild í því greiðslumarki sem til sölu kemur.
Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði sem væri 290,- kr/líter eða lægra selja nú greiðslumark sitt.
Samanburður við fyrri markað sem haldinn var þann 1. apríl 2011 sýnir eftirfarandi:
  • að framboð er nú 221 % miðað við það sem boðið var til sölu á síðasta markaði.
  • að eftirspurn eftir greiðslumarki er nú 64 % miðað við það sem óskað var eftir á síðasta markað.
  • að verð á greiðslumarki hefur hækkað í krónum talið um 5 kr/líter

Samkvæmt tilkynningu frá Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu sem gefin var út í gær, verður greiðslumarkið 114,5 milljónir lítra árið 2012. Það er samdráttur um 1,5 milljónir lítra frá yfirstandandi ári. Sala á próteingrunni er nú um 114 milljónir lítra.