Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Niðurstöður tilboðsmarkaðar með greiðslumark í mjólk

01.04.2015

Við opnun tilboða um kaup og sölu á greiðslumarki mjólkur þann 1. apríl 2015  skv. reglugerð nr. 190/2011 með síðari breytingum, hefur komið fram  jafnvægisverð á markaði krónur 150 kr. fyrir hvern lítra mjólkur.

Alls bárust Matvælastofnun 17 tilboð um kaup eða sölu á greiðslumarki. 

  • Fjöldi gildra tilboða um sölu = 8 
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup = 9
  • Greiðslumark sem boðið var fram = 342.933 lítrar.
  • Greiðslumark sem óskað var eftir = 610.000 lítrar.
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða = 167.933 lítrar.
  • Kauphlutfall viðskipta er 98.78 %

Á meðfylgjandi mynd má sjá niðurstöðu tilboðsmarkaðar þann 1. apríl 2015. Á myndinni er sýnd blá lína framboðs og rauð lína eftirspurnar. Jafnvægisverð sem fram kom á markaðinum reyndist krónur 150 kr./l. 

 

 

 

Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði sem væri  150,-  kr./l. eða lægra selja nú greiðslumark sitt. 

Samanburður við fyrri markað sem haldinn var þann 1. nóvember 2014 sýnir eftirfarandi:

  • að framboð er nú 180,6 % miðað við það sem boðið var til sölu á síðasta markaði
  • að eftirspurn eftir greiðslumarki er nú 542,7 % miðað við það sem óskað var eftir á síðasta markaði
  • að verð á greiðslumarki nú er 10 krónum hærra en það var á markaði þann 1. nóvember 2014