Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Niðurstöður kvótamarkaðar 1. apríl 2012

02.04.2012

Við opnun tilboða um kaup og sölu á greiðslumarki mjólkur skv. reglugerð nr. 190/2011 þann 1. apríl 2012 hefur komið fram  jafnvægisverð á markaði  krónur 300 kr. fyrir hvern lítra mjólkur.

Alls bárust Matvælastofnun 59 tilboð um kaup eða sölu á greiðslumarki.

 

Fjöldi gildra tilboða um sölu = 11
 
Fjöldi gildra tilboða um kaup = 46
 
Greiðslumark sem boðið var fram = 488.756 lítrar.
 
Greiðslumark sem óskað var eftir = 1.522.805 lítrar.
 
Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða = 488.756 lítrar. Kauphlutfall viðskipta er 34,95 %

Á meðfylgjandi mynd má sjá niðurstöðu tilboðsmarkaðar þann 1. apríl 2012. Á myndinni er sýnd blá lína framboðs og rauð lína eftirspurnar. Jafnvægisverð sem fram kom á markaðinum reyndist krónur 300 kr/l.  

 

Niðurstaða uppboðsmarkaðarins nú er að allir seljendur með gild tilboð ná að selja boðið greiðslumark þar sem uppsafnað magn frá kaupendum reyndist hærra en sölumagn á jafnvægisverði. Þetta veldur því að sölu- og eftirspurnarlínur skerast ekki en viðskipti verða engu að síður.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þeir sem lögðu inn kauptilboð og buðu verð = 300 kr/líter eða hærra fá nú keypt hlutdeild í því greiðslumarki sem til sölu kemur.


Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði sem væri  300,-  kr/líter eða lægra selja nú greiðslumark sitt.


Samanburður við fyrri markað sem haldinn var þann 1. nóvember 2011 sýnir eftirfarandi:

 •að framboð er nú 54,2 % miðað við það sem boðið var til sölu á síðasta markaði.
 •að eftirspurn eftir greiðslumarki er nú 147,6 % miðað við það sem óskað var eftir á síðasta markað.
 •að verð á greiðslumarki hefur hækkað í krónum talið um 10 kr/líter.

 

www.mast.is