Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Niðurstöður innlausnarmarkaðar fyrir greiðslumark sauðfjár

23.11.2022

Innlausnarmarkaður ársins 2022 með greiðslumark í sauðfé var haldinn þann 15.nóvember. Matvælaráðuneytinu bárust 226 umsóknir um kaup og 22 umsóknir um sölu.

Tilboð voru send með rafrænum hætti í gegnum Afurð sem er greiðslukerfi landbúnaðarins og liggur niðurstaða markaðarins nú fyrir.

Innlausnarverð ársins jafngildir beingreiðslum næstu tveggja ára og er 11.904,- kr./ærgildi. Sama verð gildir fyrir kaup og sölu.

Alls var óskað eftir 57.425 ærgildum til kaups. Til ráðstöfunar voru 5.135 ærgildi eða 8,9 % af kaupóskum. Úthlutað var samkvæmt forgangsreglum reglugerðar um stuðning við sauðfjárrækt nr 144/2022. Af 226 umsækjendum alls töldust 170 til forgangshóps og 56 til almenns hóps. Allt það greiðslumark sem var til ráðstöfunar rann til forgangshóps og var því ekkert til úthlutunar í almennan hóp.

Sala greiðslumarks fer nú fram samkvæmt úthlutun. Matvælaráðuneytið mun senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram. Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast í Afurð.