Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Niðurstöður afurðaskýrslna nautgriparæktarinnar í júlí

13.08.2012

Niðurstöður afurðaskýrslnanna í nautgriparæktinni við lok júlí 2012, hafa verið reiknaðar og birtar á nautgriparæktarsíðunum á vef okkar. Nánar má skoða þær hér. Þegar yfirlitið var búið til, á miðnætti hinn 12. júlí, höfðu borist skýrslur frá 94% þeirra 596 búa sem skráð eru í skýrsluhaldið.

Helstu niðurstöðurnar eru þær að 21.975,6 árskýr mjólkuðu að meðaltali 5.624 kg sl. 12 mánuði, sem er nánast sama niðurstaða og í síðasta uppgjöri, aðeins 3 kg lægri. Hæsta meðalnytin við lok júlí var á Hóli í Sæmundarhlíð í Skagafirði 7.888 kg eftir árskú en þar voru einnig hæstar meðalafurðir í júní sl. Næst á eftir kom búið á Hraunhálsi í Helgafellssveit á Snæfellsnesi en þar var nytin 7.674 kg en það bú var nr. 3 í síðasta mánuði. Þriðja búið á listanum var að þessu sinni búið í Miðdal í Kjós en þar voru meðalafurðirnar 7.586 kg eftir árskú.

Á 21 búi fór meðalnytin yfir 7.000 kg eftir árskú en á 19 búum í mánuðinum á undan.

Nythæsta kýrin á síðustu 12 mánuðum var hin sama og næstu sex mánuði á undan, Blíða nr. 1151 í Flatey á Mýrum, A-Skaft., nyt hennar síðastliðna 12 mánuði var 13.708 kg. Önnur kýrin í röðinni yfir nythæstu kýrnar síðastliðna 12 mánuði var einnig kýr í Flatey, Munda nr. 1131 og var hún í sama sæti og tvo síðastliðna mánuði, en hún mjólkaði 12.670 kg. Hin þriðja á þessum lista í júlílok 2012 var Laufa nr. 1089, á sama búinu og hinar fyrri, í Flatey á Mýrum. Hún mjólkaði 12.267 kg sl. 12 mánuði. Alls náðu 16 skýrslufærðar kýr að fara yfir 11.000 kg á síðustu 12 mánuðum og ein þeirra yfir 13.000 eins og fram hefur komið.