Niðurstöður afkvæmaprófana teknar fyrir á fundi fagráðs
29.05.2012
Fagráð í nautgriparækt fundar í Búgarði á Akureyri í dag. Helstu dagskrárefni fundarins eru niðurstöður afkvæmaprófana á nautum, endanlegt mat á árgangi nauta frá 2005 og kynning á niðurstöðum fyrir nautin frá 2006. Þá verður farið yfir stöðu eldri nauta og ákveðið hvaða naut verða í næstu útgáfu Nautaskrárinnar. Einnig verður farið yfir skýrslur frá Nautastöð BÍ um framgang sæðistöku, birgðahald og sæðisnotkun, farið yfir kröfur til nautsmæðra og ályktun frá aðalfundi LK um eflingu ræktunar íslenska kúastofnsins, auk annarra mála./BHB