Niðurstöður á tilboðsmarkaði með greiðslumark mjólkur
01.09.2014
Við opnun tilboða um kaup og sölu á greiðslumarki mjólkur þann 1. september 2014 skv. reglugerð nr. 190/2011 með síðari breytingum, hefur komið fram jafnvægisverð á markaði krónur 180 kr. fyrir hvern lítra mjólkur.
Alls bárust Matvælastofnun 10 tilboð um kaup eða sölu á greiðslumarki.
- Fjöldi gildra tilboða um sölu = 9
- Fjöldi gildra tilboða um kaup = 1
- Greiðslumark sem boðið var fram = 235.990 lítrar.
- Greiðslumark sem óskað var eftir = 16.666 lítrar.
- Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða = 12.219 lítrar.
- Kauphlutfall viðskipta er 73,32 %
Á meðfylgjandi mynd má sjá niðurstöðu tilboðsmarkaðar þann 1. september 2014. Á myndinni er sýnd blá lína framboðs og rauð lína eftirspurnar. Jafnvægisverð sem fram kom á markaðinum reyndist krónur 180 kr/l.
Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði sem væri 180,- kr/líter eða lægra selja nú greiðslumark sitt.
Samanburður við fyrri markað sem haldinn var þann 1. apríl 2014 sýnir eftirfarandi:
- að framboð er nú 12,5 % miðað við það sem boðið var til sölu á síðasta markaði.
- að eftirspurn eftir greiðslumarki er nú 23,2 % miðað við það sem óskað var eftir á síðasta markaði.
- að verð á greiðslumarki nú er 80 krónum lægra en það var á markaði þann 1. apríl 2014