
Nestlé stækkar og stækkar
15.03.2017
Matvælarisinn Nestlé, sem er lang stærsta matvæla- og mjólkurvinnslufyrirtæki í heiminum, hefur nú birt ársuppgjör sitt fyrir árið 2016 en tekjur Nestlé voru hvorki meiri né minni en 9.644 milljarðar íslenskra króna sem er meira en 12-faldar tekjur ríkissjóðs Íslands! En þó svo að fyrirtækið sé lang stærst á sínu sviði þá hafa verið sett markmið um enn meiri vöxt. Nýr forstjóri Nestlé, Mark Schneider, er metnaðarfullur fyrir hönd Nestlé og segir það stefnu fyrirtækisins að auka tekjurnar um 3,2% í ár.
Auk þess að efla sölu Nestlé verður ráðist í sparnaðaraðgerðir í ár, sem ætlað er að skili fyrirtækinu auknum hagnaði. Nestlé er alþjóðlegt fyrirtæki á hlutabréfamarkaði og eru hlutabréf þess í eigu 250 þúsund aðila og er meirihluti eigendanna frá Sviss eins og fyrirtækið sjálft/SS.