Beint í efni

Nautastöð Landssambands kúabænda ehf slitið

10.01.2008

Félagið Nautastöð Landssambands kúabænda ehf var stofnað 13. maí 1994. Tilgangur félagsins samkvæmt samþykktum var m.a. að annast inn- og útflutning á nautgripum og hvers kyns erfðaefni, stofnun, varðveisla, dreifing og sala á erfðaefni, rekstur á einangrunarstöð, dreifing og sala á hugbúnaði fyrir kúabændur og önnur skyld starfsemi. Félagið stóð að innflutningi á erfðaefni úr Aberdeen Angus og Limousine holdanautakynjunum um miðjan síðasta áratug og rak einangrunarstöð í Hrísey í því skyni. Nautastöð Bændasamtaka Íslands á Hvanneyri hefur um nokkurra ára skeið séð um dreifingu á sæði úr þessum kynjum.  

Starfsemi NLK ehf fólst því hin síðari ár einungis í því að gefa út einn sölureikning á ári vegna þessarar sæðissölu og greiða virðisaukaskatt af henni. Það þótti núverandi framkvæmdastjóra LK, sem hefur umsjón með NLK ehf. vera heldur umfangslítill rekstur fyrir heilt félag og var því tekin ákvörðun um það á stjórnarfundi í júní 2006 um að slíta félaginu. Það ferli hefur tekið á annað ár, aðallega vegna óuppgerðra skattamála félagsins, en það átti inni ofgreidda skatta sem námu umtalsverðri upphæð. Einnig hafa á tímabilinu fengist greiddar nokkrar eldri útistandandi kröfur félagsins, þannig að í heild hefur þetta verið hagstæður gjörningur fyrir LK, sem síðasta starfsárið var eini eigandi NLK ehf.  Slit Nautastöðvar Landssambands kúabænda ehf. miðast við 30. desember 2007.