Nautakjötssala eykst áfram
14.03.2013
Samkvæmt nýjum upplýsingum um framleiðslu og sölu á nautgripakjöti er sala þess 4.165 tonn sl. 12 mánuði (mars 2012-febrúar 2013). Það er 3,4% aukning frá árinu á undan. Af þessu var sala á ungnautakjöti 2.411 tonn sem er 5% aukning frá árinu á undan. Umtalsverður samdráttur er í slátrun kálfa á þessu tímabili, eða 12,4%.
Á tímabilinu var heildar kjötsala hér á landi 24.836 tonn, sem er 4,7% aukning frá fyrra ári. Sala á alifuglakjöti var 7.931 tonn, kindakjöti 6.554 tonn, svínakjöti 5.5.81 tonn, nautakjöti 4.165 tonn eins og áður segir og hrossakjötssala var 613 tonn. Sala jókst á öllum tegundum nema svínakjöti, þar var 3,6% samdráttur.
Innflutningur á nautakjöti í janúar sl. var 1,9 tonn./BHB