
Námskeið í gæðastýringu í sauðfjárrækt
22.05.2012
Fyrirhugað er að halda námskeið í gæðastýringu í sauðfjárrækt á þremur stöðum um miðjan júní ef næg þátttaka næst. Námskeiðin verða á eftirfarandi stöðum:
Stóra-Ármóti, þriðjudaginn 12. júní
Hvanneyri, fimmtudaginn 14. júní
Búgarði á Akureyri, mánudaginn 18. júní
Námskeiðin hefjast kl. 10.00 fyrir hádegi og þeim lýkur kl. 18.00. Þeir sem óska eftir að sækja fyrirhuguð námskeið eru vinsamlegast beðnir að skrá þátttöku til Bændasamtaka Íslands fyrir 5. júní í síma 563-0300 eða með tölvupósti til bella@bondi.is.