Beint í efni

Námskeið í gæðastýringu í sauðfjárrækt

05.06.2008

Orðsending til nýrra þátttakenda í gæðastýringu:
Nýir þátttakendur í gæðastýringu í sauðfjárrækt þurfa að sækja um það til Matvælastofnunar á þar til gerðum umsóknareyðublöðum. Umsóknarfrestur er til 20. nóvember ef framleiðandi óskar eftir álagsgreiðslum fyrir næsta almanaksár.

Námskeið
Eitt af grunnskilyrðum fyrir þátttöku í gæðastýringu í sauðfjárrækt er að hafa sótt undirbúningsnámskeið en þau verða haldin á eftirfarandi stöðum:

- Búgarði á Akureyri, mánudaginn 16. júní
- Stóra-Ármóti miðvikudaginn 18. júní.

Námskeiðin hefjast kl. 10.00 fyrir hádegi og þeim lýkur kl. 18.00.

Eitt námskeið verður haldið á Hvanneyri nk. haust, ætlað þeim sem ekki komast nú.

Námskeiðin eru ætluð þeim framleiðendum sauðfjárafurða sem:
- eru nýir þátttakendur og/eða hafa ekki sótt námskeið áður
- eru nýir ábúendur eða eigendur jarða
- eru að hefja sauðfjárbúskap, taka við sauðfjárbúi eða gera það síðar á þessu ári eða því næsta.

Skráning
Þeir sem óska eftir að sækja fyrirhuguð námskeið eru vinsamlegast beðnir að skrá þátttöku til Bændasamtaka Íslands eða viðkomandi búnaðarsambands fyrir 13. júní. Unnt er að skrá þátttöku í síma 563 0300 eða á tölvupósti bella@bondi.is

/Bændasamtök Íslands