Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Námskeið í gæðastýringu í sauðfjárrækt

22.05.2008

Nýir þátttakendur í gæðastýringu:
Nýir þátttakendur í gæðastýringu í sauðfjárrækt þurfa að sækja um það til Matvælastofnunar á þar til gerðum umsóknareyðublöðum. Umsóknarfrestur er til 20. nóvember ef framleiðandi óskar eftir álagsgreiðslum fyrir næsta almanaksár.

Námskeið:
Eitt af grunnskilyrðum fyrir þátttöku í gæðastýringu í sauðfjárrækt er að hafa sótt undirbúningsnámskeið.

Sérstök námskeið vegna gæðastýringar í sauðfjárrækt verða haldin á tveimur til þremur stöðum á landinu á tímabilinu 13. til 20. júní nk. Staðsetning námskeiðanna verður auglýst þegar fyrir liggur hvaðan væntanlegir þátttakendur koma.

Ákveðið hefur verið að halda námskeið á Stóra Ármóti miðvikudaginn18. júní.

Námskeiðin hefjast kl. 10.00 fyrir hádegi og þeim lýkur kl. 18.00.

Námskeiðin eru ætluð þeim framleiðendum sauðfjárafurða sem :
- eru nýir þátttakendur og/eða hafa ekki sótt námskeið áður
- eru nýir ábúendur eða eigendur jarða, - eru að hefja sauðfjárbúskap, taka við sauðfjárbúi
eða gera það síðar á þessu ári eða því næsta.

Skráning:
Þeir sem óska eftir að sækja fyrirhuguð námskeið eru vinsamlegast beðnir að skrá þátttöku til Bændasamtaka Íslands eða viðkomandi búnaðarsambands fyrir 9. júní nk. Unnt er að skrá þátttöku í síma 563 0300 eða á tölvupósti bella@bondi.is

/Bændasamtök Íslands.