Nærri 30% færri kúabændur hættu á árinu 2004 miðað við fyrra ár
13.01.2005
Samkvæmt nýju yfirliti sem LK lét taka saman kemur fram að mun færri kúabændur, þ.e. greiðslumarkshafar, hættu á árinu 2004 miðað við árin á undan. Samkvæmt skránni, sem unnin er af Bændasamtökunum, eru nú 866 aðilar skráðir fyrir greiðslumarki mjólkur en voru á sama tíma fyrir ári 902 og 953 í ársbyrjun 2003. Samkvæmt þessum upplýsingum hefur hlutfallsleg fækkun greiðslumarkshafa dregist saman um þriðjung á milli ára. Hlutfallsleg fækkun á milli ára var því 5,3% 2003-2004 en einungis 4,0% 2004-2005.