Beint í efni

MS styrkir góðgerðarfélög um 2 milljónir fyrir hátíðarnar

03.12.2020

Mjólkursamsalan hefur í ár líkt og undanfarin ár lagt hjálparsamtökum lið fyrir jólin. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að að þessu sinni hafi verið úthlutað 2 milljónum króna í formi vöruinneigna og peninga til fimm góðgerðarfélaga en félögin sem hlutu styrk í ár voru Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Mæðrastyrksnefnd Akureyrar (í samstarfi við önnur hjálparsamtök á Akureyri), Fjölskylduhjálp Íslands og Hjálparstarf Kirkjunnar.

Fjölmargar matargjafir fara frá félögunum fyrir jól en þar verður að finna meðal annars mjólk, smjör og osta frá Mjólkursamsölunni. Mikið og þarft starf er unnið á fjölmörgum stöðum á landinu í óvenjulegum aðstæðum og er það von Mjólkursamsölunnar að styrkirnir nýtist sem best.