Mótmæla hugmyndum ráðherra
26.03.2011
Afgreiðsla mála stendur nú yfir á aðalfundi Landssambands kúabænda, sem haldinn er á Akureyri. Nú hafa verið samþykktar nokkrar ályktarnir fundarins, en hægt er að fylgjast með framgangi hans í beinni útsendingu á vef LK. Rétt í þessu var samþykkt harðorð ályktun til Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, vegna samráðsleysis hans í tengslum við setningu reglugerðar um tilboðsmarkað með greiðslumark og skorað á hann að fjölga tilboðsdögum á markaðinum í samráði við LK. Fram kom í umræðum að hag mjólkurframleiðenda væri betur borgið með fjölgun markaðsdaga meðan þeir aðlagast nýju fyrirkomulagi, ekki síst vegna þeirrar óvissu um verðmyndun á greiðslumarki sem nýlegar breytingar á skattalögum gætu haft í för með sér. Við setningu reglugerðar um markað með greiðslumark var ekkert samráð haft við LK, ítrekaðar óskir bænda um að fá annmarka sniðna af reglugerðinni hefur ráðherra haft að engu.
Þá mótmælir fundurinn harðlega fram komnum hugmyndum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um breytingar á reglum um útdeilingu á ónýttu greiðslumarki.