Beint í efni

Mjólkurlítrinn á 90 aura !

08.03.2005

Á fjórða tímanum í dag var mjólkin til sölu í Bónus á 90 aura, en kostaði 5 krónur á þriðja tímanum. Verðstríð hefur verið í gangi undanfarna daga á milli Bónus og Krónunnar og sér ekki fyrir endann á því. Bónus hefur tekið upp á því að skammta mjólk og má hver kaupandi einungis kaupa 5 lítra í einu, enda sjáanlega mikill hagur annarra verslana að kaupa mjólkina í þessum verslunum. Rétt er að geta þess að verslunarkeðjurnar selja

nú hvern mjólkurlítra með gríðarlegu tapi, en innkaupsverð mjólkur með mesta afslætti stórkaupenda er um 75 krónur lítrinn með virðisaukaskatti.