Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Mjólkurframleiðslan meiri sl. 2 mánuði en í fyrra

31.10.2011

Samkvæmt yfirliti frá Samtökum afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) nam innvegin mjólk í september sl. 9,6 milljónum lítra en á sama tíma í fyrra voru 9,2 milljónir lítra innvegnir til afurðastöðvanna og nemur aukningin í ár 3,6%.
 
Það sem af er ári hefur heildarframleiðsla kúabúa landsins legið nokkuð undir framleiðslu síðasta árs en mikil aukning í ágúst sl. og aftur góð aukning nú í september vegur muninn verulega upp. Fyrstu níu mánuði ársins nam framleiðslan 94,8 milljónum lítra en í fyrra nam hún 95,1 milljónum lítra og er framleiðslan nú því 0,2% minni en á sama tíma í fyrra.
 
Þegar litið er til sölunnar síðustu 12 mánaða kemur fram að sala mjólkurvara á próteingrunni var 113,9 milljónir lítra og á fitugrunni 110,6 milljónir lítra/SS.