Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Mjólkurframleiðslan í júní örlítið minni en í fyrra

11.07.2005

Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði var mjólkurframleiðslan í júní 9,9 milljónir lítra en í júní í fyrra var hún 10,1 milljón lítra. Miðað við óskir mjólkuriðnaðarins um kaup á umframmjólk í sumar er því orðið ljóst að landsframleiðslan í júlí og ágúst þarf að vera amk. hálfri milljón lítrum meiri en í júlí og ágúst í fyrra. LK hvetur kúabændur landsins til að yfirfara vel allt framleiðsluskipulag viðkomandi kúabús vegna þessa. Samtals hafa nú verið framleiddir

 

93,5 milljónir lítrar mjólkur og þarf framleiðslan í júlí og ágúst því að skila amk. 19 milljónum lítrum mjólkur ef framleiða á alla þá mjólk sem iðnaðurinn hefur kallað eftir, sem eru 112,5 milljónir lítra.

 

Greiðslumarkið verðlagsárið 2004/2005 er 106 milljónir lítra og þarf því hver mjólkurframleiðandi að jafnaði að framleiða 6,1% umfram sitt greiðslumark svo að tryggt sé að iðnaðurinn fái þá mjólk til vinnslu sem óskað hefur verið eftir.

 

Framleiðsla mjólkur síðustu ár í júní, júlí og ágúst hefur verið eftirfarandi (í milljónum lítra)*:

2002 2003 2004 2005

Júní

9,4 9,6 10,1 9,9
Júlí 9,6 8,9 9,6 ?
Ágúst 8,7 7,9 8,9 ?
Samtals 27,7 26,4 28,6 amk. 28,9

* Af vef SAM (www.sam.is)