Beint í efni

Mjólkurframleiðslan 1,4% minni en á sama tíma í fyrra

15.06.2011

Samkvæmt yfirliti frá Samtökum afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) var sala á mjólkurvörum í maí heldur minni í ár en á sama tíma í fyrra þrátt fyrir fleiri virka söludaga. Þegar litið er til sölunnar síðustu 12 mánaða kemur jafnframt fram að salan hefur verið að dragast saman. Sala á osti heldur hinsvegar áfram að aukast á milli ára.

 

Samdrátturinn í sölu á próteingrunni nemur 1,6% og á fitugrunni er samdrátturinn 1,1%. Ítrekað skal að þessi reiknaði samdráttur er eingöngu í notkun á mjólk til framleiðslu þeirra vara sem seldust og á ekki við um einingarfjölda eða t.d. verðmæti seldra vara.
 
Þessu samhliða er framleiðsla mjólkur á kúabúum landsins töluvert minni það sem af er ári, miðað við árið 2010 og munar 1,4% á milli áranna. Alls hafa kúabú landsins nú framleitt 53,3 milljónir lítra mjólkur á fimm mánuðum ársins, en í fyrra var framleiðslan á sama tíma 54,1 milljónir lítra/SS.