
Mjólkurframleiðsla 64,3 milljón lítrar fyrstu 5 mánuði ársins
06.06.2017
Á fyrstu fimm mánuðum ársins hefur innlögð mjólk náð 64,3 milljón lítrum samanborið við 66,2 milljón lítra árið áður. Framleiðslan í maímánuði var þó nokkuð yfir sama mánuði í fyrra eða 14,3 milljón lítrar m.v. 13,9 milljón lítra árið 2016, sem samsvarar 2,85% aukningu. Heildarframleiðsla fyrstu 5 mánuði ársins er þó 1,27% minni en á sama tíma í fyrra.
Mjólkurframleiðslan hefur færst nær framleiðslu ársins 2016 með hverjum mánuðinum en árið í fyrra var metár í framleiðslu á mjólk hér á landi eða 150,3 milljón lítrar.