Mjólk úr afkomendum klónaðrar kýr rannsökuð
05.08.2010
Undanfarna daga hafa bresk dagblöð farið hamförum yfir því að naut, undan klónaðri kú, var sent í sláturhús og kjöt þess út til neytenda í Skotlandi í fyrra. Samkvæmt reglum Evrópusambandsins er þetta ekki heimilt og því er málið á viðkvæmu stigi. Ekki þarf að taka fram að sönnunargögnin í málinu voru borðuð og því ekki aðgengileg til rannsókna.
Málið komst upp er
eftirlitsaðilar fylgdu eftir ábendingu um að bú í Skotlandi væri að framleiða mjólk úr kúm sem væru afkomendur frægar verðlaunakýr frá Pennsylvaniu fylki í Bandaríkjunum, en sú kýr var einmitt klónuð. Skoskur bóndi keypti tvo fósturvísa úr kúnni og fékk afburða góð naut sem hann hefur notað til þess að kynbæta hjörð sína.
Nú er verið að rannsaka hvort satt sé að mjólk hafi verið seld til neytenda en DairyCo, systursamtök LK í Bretlandi, fullyrða að svo sé ekki og nautin hafi eingöngu verið notuð til þess að framleiða fósturvísa til útflutnings.
Hver sem niðurstaðan verður, er líklegt að einhversstaðar í heiminum séu neytendur að gæða sér á mjólk úr kúm sem á ættir sínar að rekja til klónaðra kynbótagripa. Þess má geta að þrátt fyrir ítrekaðar rannsóknir á bæði kjöti og mjólk af klónuðum gripum, þá hefur aldrei verið hægt að sýna fram á að þær afurðir séu á einhvern hátt lakari en hefðbundnar afurðir.