Mjög góð sala á mjólkurafurðum í ágústmánuði
05.09.2012
Mjög góð sala var á mjólkurafurðum í nýliðnum ágústmánuði. Af einstökum vöruflokkum ber helst að nefna smjör, en sala á því var um 20% meiri en á sama tíma í fyrra. Þá var einnig mjög góð sala á rjóma, sem skýrist vafalítið af mikilli berjasprettu í sumar, enda fátt betra en bláber með rjóma. Þá er ánægjulegt að sjá aukningu á drykkjarmjólkursölu í mánuðinum. Greinilegt er að fernur með skrúftappa hafa jákvæð áhrif á söluna.
Landssamband kúabænda fylgist hér eftir sem hingað til náið með söluþróuninni, enda líður senn að ákvarðanatöku um greiðslumark ársins 2013./BHB