Beint í efni

Minnsta sala á greiðslumarki í hálft ár

11.05.2005

Í apríl skiptu 194 þúsund lítrar af greiðslumarki mjólkur um eigendur, sem er minnsta selda magn í einum mánuði í hálft ár. Þá hækkaði verðið minna nú en það hefur gert undanfarna mánuði. Líklegt má telja að ákvörðun um kaup afurðastöðva á miklu magni mjólkur umfram greiðslumark hafi haft þessi áhrif, sem og sú staðreynd að mjólkurframleiðslan í apríl í ár dróst saman um 0,7% miðað við apríl í fyrra þrátt fyrir þá staðreynd að framleiðsluheimildir í ár eru meiri en í fyrra.