
Minni innvigtun en söluaukning
15.04.2017
Samkvæmt nýútkomnu yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði var sala á fitugrunni 140,6 milljónir lítra síðustu 12 mánuði (apríl 2016-mars 2017). Það er aukning frá fyrra ári um 5,2%. Síðustu þrjá mánuði (janúar 2016-mars 2017) nam söluaukningin 4,4% miðað við sama tímabil fyrir ári.
Sala á próteingrunni undanfarna 12 mánuði var 130,3 milljónir lítra, sem er aukning um 5,3% frá árinu á undan. Ef litið er til síðustu þriggja mánaða nam söluaukningin á próteingrunni 4,1%.
Innvegin mjólk undanfarna 12 mánuði var 148,9 milljónir lítra, sem er 0,7% samdráttur frá árinu á undan. Söluþróun og innvigtun er því að þróast í sitt hvora áttina um þessar mundir. Sé litið til síðasta mánaðar nam innvigtunin 13,4 milljónum lítra sem er 2,4% minni innvigtun í samanburði við mars í fyrra/SS