Miklar verðhækkanir á mjólkurvörum hjá Arla í Svíþjóð
18.09.2007
Vegna aukinnar eftirspurnar eftir mjólkurvörum á heimsmarkaði hefur Arla Foods gefið út að frá og með 3. desember n.k. verði talsverðar verðhækkanir á vörum fyrirtækisins í Svíþjóð. Að jafnaði hækkar verðið um 10%, heldur minna á ferskvörum en talsvert meira á smjöri og ostum.
Í fréttatilkynningu frá yfirmanni Arla Foods í Svíþjóð, Anders Svensson kemur fram að hækkunin er liður í því að „tryggja framboð á mjólk til vinnslu, svo við getum komið til móts við þarfir sænskra neytenda, ásamt því að nýta alla útflutningsmöguleika, finnur fyrirtækið sig knúið til að hækka verðið til neytenda“. Arla Foods í Danmörku hefur ekki ennþá sett dagsetningu eða umfang á væntanlega verðhækkun til neytenda þar í landi.
Heimild: www.landbrugsavisen.dk