Mikill mannfjöldi á Landbúnaðarsýningu
23.08.2008
Landbúnaðarsýningin sem haldin er á Hellu í tilefni af 100 ára afmæli Búnaðarsambands Suðurlands var sett eftir hádegið í gær. Í dag var þar mikill fjöldi gesta, eins og sjá má á myndinni hér að neðan. Sýningunni lýkur síðdegis á morgun, sunnudag og er ástæða til að hvetja sem flesta til að sjá það sem þar ber fyrir augu.
Á sýningunni má sjá nánast allt það sem lýtur að landbúnaði landsmanna. Þarna gefur að líta flestar tegundir búfjár og er auðséð að það hefur alltaf jafn sterkt aðdráttarafl, fyrir yngri jafnt og eldri gesti. Þá má smakka á ýmsum afurðum, m.a. á heilgrilluðu nauti í boði LK og Sláturhússins Hellu hf. Einnig kynna fjölmörg þjónustufyrirtæki landbúnaðarins vörur sínar og þjónustu. Ástæða er til að óska BSSL til hamingju með vel heppnaða og glæsilega sýningu.
Dagskrá sýningarinnar er að finna á www.landbunadarsyning.is
Mannfjöldi á sýningunni í Reiðhöllinni á Gaddstaðaflötum við Hellu í dag.
Undirritaður í bás LK í dag.