Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Mikil söluaukning í ostum og viðbiti!

03.05.2006

Nú liggja fyrir sölutölur OSS fyrir fyrstu fjóra mánuði ársins 2006. Er skemmst frá því að segja að mikil aukning er í sölu á ostum og viðbiti, miðað við sama tímabil í fyrra. Í viðbitinu er aukning um 4,3%, þar munar mest um 6,6% aukningu í sölu á Smjörva en einnig er rúmlega 1% aukning í sölu á Smjöri. Ostasalan eykst um 4,5%. Hlutfallslega er aukningin mest í 11% ostum, heil 72%, þar er sneiddur ostur að koma sterkur inn. Einnig er mikil aukning í rjómaostum og rifnum ostum. 

Heildarsala OSS á tímabilinu jókst um tæp 70 tonn, úr 1.944 tonnum í 2.013 tonn, sem er 3,5%. Fjöldi söludaga er nákvæmlega sá sami, 81, í ár og í fyrra, þannig að tímabilin eru alveg sambærilega að því leyti. Miðað við þessar sölutölur eru allar líkur á að auka þurfi greiðslumark í mjólk um nokkrar milljónir lítra á næsta verðlagsári.