Mikil söluaukning á nautakjöti
16.03.2012
Eins og við sögðum frá í frétt hér á vefnum sl. þriðjudag þá hafa Bændasamtökin tekið saman nýjar framleiðslu- og sölutölur fyrir febrúar. Í samantektinni kemur fram að sala á nautakjöti var 23,7% meiri en hún var á sama tíma í fyrra og að ársfjórðungssalan hafi verið heilum 18,1% meiri. Þá er nú árssalan, þ.e. salan sl. 12 mánuði, nú í fyrsta skipti komin yfir 4.000 tonn en heildarsalan er nú 4.019 tonn sem er aukning um 4,6% en síðustu 12 mánuðina þar á undan.
Heildarframleiðsla nautgripakjöts sl. 12 mánuði var 4.026 tonn, en framleiðslan í febrúar var 328 tonn og nam sala nautgripakjöts í mánuðinum 336 tonnum. Sé horft til sundurliðunar á sölu nautgripakjöts í mánuðinum var sem fyrr mest sala í ungnautakjöti eða 187 tonn og á 12 mánaða grunni nemur ungnautakjötssalan 2.296 tonnum eða 57,1% af heildarsölunni. Sala á kýrkjöti síðustu 12 mánuði var 1.451 tonnum eða sem nemur 36,1% af heildarsölunni.
Sé litið til annarra kjöttegunda kemur í ljós að heildarsalan á landinu öllu hefur aukist sl. 12 mánuði um 0,3%. Mest er sem fyrr salan á alifuglakjöti eða 7.216 tonn (30,4%) og þar á eftir kemur lamba- og kindakjöt með 6.215 tonn eða 26,2% markaðshlutdeild/SS.