Miðasala á árshátíð gengur vel!
08.03.2012
Góður gangur er í miðasölu á árshátíð LK sem haldin verður á Hótel Selfossi 24. mars n.k. Kúabændur og aðrir áhugasamir eru hvattir til að bíða ekki með miðapöntun, sem gerð er í síma 460 4477 – pöntun á gistingu á Hótel Selfossi er í síma 480 2500.
Veislustjóri verður Páll Stefánsson dýralæknir og hljómsveitin Stuðlabandið mun halda uppi fjörinu fram eftir nóttu.
Forréttur: Humarsúpa með fínsöxuðum skelfiski
Aðalréttur: Hægelduð nautalund með rjómakartöflum, árstíða grænmeti og rauðvínssósu.
Eftirréttur: Frönsk súkkulaðiterta með skógarberjum.
Kúabændur eru hvattir til að fjölmenna!
Árshátíðarnefnd LK