Metár framundan hjá lífrænum mjólkurframleiðendum
15.01.2016
Samkvæmt nýútkominni skýrslu frá Kaupmannahafnarháskóla er útlit fyrir að árið í ár verði metár hjá lífrænum mjólkurframleiðendum í Danmörku. Ástæðan er afar hátt verð á lífrænni mjólk en talið er að afurðastöðvaverð haldist hátt á árinu. Í skýrslunni kemur fram að bú sem stendur undir tveimur ársverkum muni skila 1,4 milljónum danskra króna til greiðslu launa. Upphæðin svarar til um 26 milljónum íslenskra króna eða rúmlega milljón í mánaðarlaun!
Um þessar mundir fá danskir bændur sem framleiða lífræna mjólk nærri 23 krónum hærra verð fyrir hvern líter en þeir sem eru í hefðbundinni mjólkurframleiðslu. Þessi munur hefur aukist all verulega undanfarna mánuði enda mikil eftirspurn nú um stundir eftir lífrænt vottaðri mjólk/SS.