Beint í efni

Matarverðslækkanir kosta meðalbúið 300.000 kr

30.11.2006

Kostnaðarhækkanir grundvallarbús í mjólkurframleiðslu á síðustu 12 mánuðum eru 9,2%. Þar munar mestu um 13% hækkun á kjarnfóðri og milli 11 og 12% hækkun á rekstrarvörum, viðhaldi og vöxtum. Til að halda óbreyttri afkomu kúabúa hefði þurft að hækka verð til framleiðenda um rúmlega 4 kr/lítra nú á haustdögum. Til að koma til móts við aðgerðir ríkisstjórnarinnar hefur verið ákveðið að halda heildsöluverði mjólkurvara óbreyttu frá síðustu áramótum, til hinna þar næstu. Það þýðir raunlækkun um ca. 10%.

 Af þeim sökum fást kostnaðarhækkanir bara að hluta uppi bornar, með hækkun á mjólkurverði til bænda. Þar vantar rúmlega 2 kr/lítra upp á. Fyrir meðalbú þýðir það um 300.000 kr. tekjuskerðingu og fyrir mjólkurframleiðsluna í heild um 230 milljónir.