Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

MAST framlengir umsóknarfrest um nýliðunarstuðning

23.05.2017

Matvælastofnun hefur framlengt umsóknarfrest vegna umsókna um nýliðunarstuðning í samræmi við ákvæði IV. kafla reglugerðar um almennan stuðning við landbúnað nr. 1240/2016. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá stofnuninni. Umsóknarfrestur er framlengdur til 20. júní 2017 og er stefnt að opna fyrir rafrænar umsóknir á Bændatorginu 7. júní 2017.

Þeir einstaklingar einir geta sótt um nýliðunarstuðning sem:

  • eru skráðir eigendur eða leigjendur lögbýlis/garðyrkjubýlis og stunda landbúnað á lögbýli/garðyrkjubýli með virkt virðisaukaskattsnúmer og starfsemi sem fellur undir atvinnugreinanúmer 01 og 02 í atvinnuvegaflokkun Hagstofu Íslands, sbr. ÍSAT2008, þó ekki starfsemi í undirflokkum 01.61, 01.62, 01.63, 01.64, 01.70 og 02.40.
  • eru á aldrinum 18-40 ára á því ári sem óskað er eftir stuðningi.
  • eru að kaupa búrekstur eða hlut í búrekstri í fyrsta skipti eða hafa leigt eða keypt búrekstur innan þriggja ára frá 1. janúar á umsóknarári.
  • hafa ekki áður hlotið nýliðunarstuðning í mjólkurframleiðslu eða bústofnskaupastyrki til frumbýlinga í sauðfjárrækt samkvæmt þágildandi reglum árin 2014-2016.

Nýliðunarstuðningur er veittur til fjárfestinga í búrekstri. Stuðningur getur að hámarki numið 20% af heildarfjárfestingakostnaði á ári og skulu framlög til einstakra nýliða ekki vera hærri en níu milljónir króna í heildarstuðning. Stuðningur til nýliða sem á hlut í lögaðila skal taka mið af eignarhlut nýliða í lögaðilanum.