Beint í efni

MAR vinnur að undirbúningi greiðslna til bænda

18.07.2022

Síðastliðinn föstudag var tilkynnt á vef matvælaráðuneytisins að unnið væri að undirbúningi greiðslna til bænda samkvæmt tillögum spretthóps sem matvælaráðherra skipaði í júní. Tillögurnar miðuðu að því að styðja sérstaklega við íslenskan landbúnað með 2,5 milljarða króna framlagi til að tryggja fæðuöryggi á Íslandi.

Í tilkynningunni kemur fram að kapp sé nú lagt á að hægt verði að greiða fyrstu greiðslur í september, en gert er ráð fyrir því að stærsti hluti þeirra fjármuna sem eru til ráðstöfunnar verði greiddur í formi álags á greiðslur skv. búvörusamningum. 

Greiðslur vegna svína-, alifugla- og eggjaframleiðslu eru síðan á áætlun í október.